Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins frestað
Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins sem auglýstur var haldinn 20. janúar 2022, frestast vegna samkomutakmarkana. Það verður opið hús í staðinn og við auglýsum nýja dagsetningu á aðalfundi þegar takmarkanir breytast, vonandi um miðjan febrúar..
Jafnframt er auglýst eftir framboðum til stjórnar klúbbsins. Þeir sem hyggja á framboð, sendi tilkynningu í netfangið ifhk@fjallahjolaklubburinn.is